Text Size
Innskráning

Kósí í koti

Fjölskyldan er búin að hafa það ansi hreint náðugt í Kelduneskoti síðustu þrjár vikurnar. Veðrið hefur leikið við okkur og við erum öll vel brún og sælleg.

Í ár komu Úlla, Lonni og Baldur, Tryggvi og Valdís, Arnar og Elsa og Óli og Ingibjörg í vist ásamt börnum auk þess sem Grétar og Björg og Steinþóra og Valdi litu við.

Við fögnuðum 7 ára brúðkaupsafmæli okkar með huggulegum kvöldverði úti á palli í kvöldsólinni eins og sést á fréttamyndinni.

Annars eru júnímyndirnar komnar inn á vefinn og júlímyndirnar rata inn fljótlega eftir verslunarmannahelgina.

Login Form